Húðflúr.is er vefur sem er settur upp af reynslumiklum húðflúrurum á Íslandi með það helsta markmið að stuðla að öryggi neytenda á markaðnum í dag.
Í kjölfar mikilla breytinga og fjölmenningar í húðflúrs iðnaðinum á Íslandi síðast liðin ár hefur færst í aukana að brotið hafi verið illa á neytendum hér á landi. Um er að ræða ófagleg vinnubrögð á borð við léleg gæði húðflúra, fjársvindl af ýmsu tagi, kynferðisofbeldi/áreiti gagnvart kúnnum, sýkingar og auknar smithættur blóðsjúkdóma af völdum lélegs hreinlætis osfv.
Til að sporna við þessari þróun og vernda starfsstéttina í heild sinni og neytendur hennar höfum við ákveðið að stofna hagsmunasamtök á íslenskum markaði. Við viljum nota þennan vef sem vettvang til að vekja meðvitund gagnvart alvarleika stöðunnar sem neytendur eru komnir í og veita almenna fræðslu og forvarnir í þágu almennings. Einnig viljum við bjóða fram lista af starfandi listamönnum með reynslu sem teljast fagaðilar í sínu starfi og hafa fram að þessu sýnt ábyrgð og fagleg vinnubrögð á þessum vettvangi. Þannig getum við boðið uppá auðveldari leið til að neytendur geti upplifað öryggi á markaðnum í dag. Settar verða fram kröfur sem listamönnum ber að uppfylla til að öðlast þáttöku. Farið verður leiða til að þetta fari fram á lýðræðislegan og faglegan máta.
Til samantektar er um að ræða hagsmunasamtök faglærðra húðflúrara á Íslandi. Þessi samtök samanstanda af starfandi húðflúrurum sem sýnt hafa fagleg vinnubrögð í verki á sínum ferli og búa yfir ástríðu og metnaði gagnvart faginu og þessum málaflokki.
MBK, Stjórnendur.

