Hér má finna lista yfir alla starfandi húðflúrara á Íslandi sem hafa fengið þáttökuaðild sem meðlimir húðflúr.is
Allir starfandi húðflúrarar geta sótt um aðild og eru hvattir til þess. Umsóknir fara í gegnum stjórn húðflúr.is og þarf að standast ákveðin skilyrði til að komast komast á hann. Skilyrðin eru frekar einföld en brot á þeim varðar við brottrekstri.
Skilyrðin eru eftirfarandi:
- Að aðili hafi lokið sóttvarnarnámskeiði og starfi í húsnæði sem hefur hlotið starfsleyfi samkvæmt úttekt hjá heilbrigðiseftirliti í viðeigandi sveitarfélagi.
- Að aðili hafi amk 3 ára starfsreynslu og hafi öðlast á þeim tíma lámarks færni við gerð húðflúra. Færni er metin af lýðræðislegu og faglegu mati af hálfu stjórnarmeðlima. Standist aðili ekki færnikröfur fær viðkomandi samantekt á matinu þar sem farið er yfir hvaða atriði þarf að bæta til að geta aukið færni sína og sótt um að nýju.
- Að aðili hafi ekki orðið uppvís að fjársvindli gagnvart kúnnum í starfi.
- Að aðili hafi ekki orðið uppvís að kynferðislegu ofbeldi/áreiti á starfstíma sínum.
- Að aðili teljist sem ábyrgur húðflúrari og hafi sínt fram á fagleg vinnubrögð í starfi.
Eftirfarandi aðilar hafa hlotið þáttökuaðild:

