Stofnun Húðflúr.is

Stofnun Húðflúr.is

Fyrsta fréttin á vefnum er að sjálfsögðu varðandi stofnun hans. Við viljum bjóða ykkur hjartanlega velkomin og þakka öllum kærlega fyrir stuðning og góðar móttökur.

Við vonumst til þess að Húðflúr.is verði farsæll vettvangur fyrir neytendur á markaðnum og verði einnig hvatning fyrir alla húðflúrara til þess að blómstra í starfi og bjóða upp á gott samstarf með neytendum. Skoða má umfjöllun um þessi hagsmunasamtök í hlekknum “um okkur“ hér á vefnum og búast má við að vefurinn muni fyllast af allskonar fræðslu og flottum artistum á listann næstu mánuði.

Hvatinn á bakvið opnun þessa vefs er bersýnilega að gæta hagsmuna neytenda og vernda starfsstéttina og við trúum því að með sameiningu fagaðila og ástríðu fyrir listforminu getum við skapað samfélag sem getur snert við framtíðarþróun og velferð okkar allra á jákvæðan hátt.

Færðu inn athugasemd

Verið velkomin!

Þessi vefur er byggður upp af reynslumiklum atvinnu húðflúrurum á Íslandi.

Okkar helsta markmið er að tryggja öryggi neytenda á húðflúrs markaðinum.

Hafðu samband

Nýlegir pistlar